Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Gå ut senteret i Hurdal...

Sælt veri fólkið!

Við verðum á námskeiði alla vikuna í vetrarríkinu Hurdal. Hér er afskaplega fallegt og flott skíðafæri fyrir þá sem hafa áhuga á slíku...

Gå Ut senteret i Hurdal

 

 

 

Hafið það sem allra best!

Fanney og Fjölnir


Ég er orðin of gömul fyrir svona "smábarnadæmi"...

Það að vakna á nóttinni er ekki að gera sig fyrir mig lengur...Sleeping Ég er svo þreytt eftir að hafa vaknað á tveggja tíma fresti sl. 2 nætur til að kæla hnéið á Daníel.

Læt hér fylgja mynd af stráknum... hnéið er "aðeins" bólgið!

 

Hnémynd

 

 

 

 

 

 

 

 

Kærar kveðjur

Fanney


Greyið Danni...

Sæl verið þið kæru lesendur!

Daníel slasaði sig aftur í dag... hnéskelin fór aftur út úr lið.. :-(((( Þá er það bara 5-6 vikur á hækjum aftur og svo að æfa sig upp aftur. Greyið kallinn! Hann er frekar leiður, en samtímis er hann að upplifa að strákar sem hann hefur kynnst hér á Fjellhaug hugsa vel um hann og eru svo kærleiksríkir. Einn kom með Playstation tölvu og fótbolta leiki og er búinn að spila við hann í allt kvöld. Annar lánaði honum DVD myndir og amma og afi komu alla leið frá Asker bara til að knúsa hann og gefa honum uppáhalds súkkulaðið sitt... Firkløver!

Ég bið kærlega að heilsa ykkur öllum og vona að þið hafið það gott. Við erum rosalega ánægð í skólanum og erum áþreifanlega vör við gæsku Guðs og varðveislu! Guð er yndislegur faðir!

Við fengum vers frá bekkjasystur okkar Fjölla til Daníels... læt þau fylgja:

Sálm 86:7 "Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig
því að þú bænheyrir mig. "

Orðskv. 3:26 "því að Drottinn verður athvarf þitt
og varðveitir fót þinn svo að hann verði ekki fanginn.
"

 

Knús frá Fanney og Co.


Rosalega gaman...

Bekkurinn átti að predika / vera með vitnisburð í kirkju sem Crispin, bekkjafélagi okkar, er með hér í Osló. Þetta var doldið öðruvísi enn þessi venjulega sunnudags kirkja.. klukkutíma lofgjörð á frönsku. Svo orð og svo við með vitnisburð. Þetta tók þrjá og hálfann tíma og strákarnir voru bara stilltir!!

Orðin sem ég fékk voru í Orðskviðirnir 30:5-9 :

"Sérhvert orð Guðs er hreint, hann er skjöldur þeim er leita hælis hjá honum.
Bættu engu við orð hans til þess að hann ávíti þig ekki og geri þig beran að lygum.
Um tvennt bið ég þig, synjaðu mér þess ekki áður en ég dey: Lát fals og lygi vera fjarri mér,
gef mér hvorki fátækt né auðæfi en veit mér minn deildan verð. Ég kynni annars að verða of saddur og afneita og segja: „Hver er Drottinn?“ Ef ég yrði fátækur kynni ég að stela og misbjóða nafni Guðs míns." 

Og svo dreymdi mig þessi orð: Þú getur ekki gefið neitt sem Jesús gefur ekki.. ég tengi þetta við Mörtu syndrómið sem ég er oft í... gefa.. gefa.. þjóna.. þjóna.. og þess vegna var þetta gott fyrir mig að heyra. Jesús þarf að gefa mér það sem ég get gefið áfram. Rétt streymi!

Guð blessi ykkur og varðveiti og styrki ykkur í trúnni!

Knús frá Fanney og ÖLLUM strákunum mínum!

ps... mér finnst ROSALEGA gaman að fá athugasemdir/comment!!!


Hvað er að gerast....??

... svo sem ekkert sérstaklega fréttnæmt, en það er samt alltaf brjálað að gera. Strákarnir eru í góðum gír. Davíð fór í leikskóolann í gær eftir veikindi síðan á laugardaginn sl. Hann hefur samt ekkert verið rúmliggjandi.. við komumst í skólann á mánudaginn vegna þess að Markús passaði. Hann þurfti að fara í bólusetningu eftir hádegið og þá tók því næstum ekki að senda hann í skólann fyrir 2 tíma.. á þriðjudaginn passaði Niu hann og á miðvikudaginn var lestrardagur.. það er alveg glæsilegt að hafa ekkert verið frá úr skólanum frá byrjun þrátt fyrir einhver veikindi strákanna...

Daníel er mun sáttari.. takk fyrir! Markús er mjög jákvæður og barasta farinn að hlakka til að fara til Afríku.. til að kaupa mótorhjól :-) Salómon er farinn að koma heim með leigubíl úr skólanum. Það gengur vel, hann er búinn að segja bílstjóranum ALLT! greyjið kallinn (bæði hann og bílstjórinn) Davíð er að glíma við SMÁ frekju, eða réttara sagt erum við að glíma við þessa frekju í honum. Meira að segja Daníel, sem hefur ekki alltaf verið sammála okkar uppeldisaðferðum eða fundist við of ströng, sagði að "við yrðum að herða uppeldið.. þetta gengi ekki lengur að vera svona eftirgefanleg... hann yrði bara alveg eins og hann" eða eitthvað í þeim dúr.. já það er ekki auvelt að vera elstur og horfa uppá foreldrana mildast!

jæja... ég er að fara í tíma og hér er textinn sem við komum til að fara yfir... þá getið þið verið með okkur í anda með því að hugleiða textann og leyfa Heilögum Anda að ljúka honum upp fyrir ykkur!

Fjallræðan

1Þegar Jesús sá mannfjöldann gekk hann upp á fjallið. Þar settist hann og lærisveinar hans komu til hans. 2Þá hóf hann að kenna þeim og sagði:
3„Sælir eru fátækir í anda
því að þeirra er himnaríki.
4Sælir eru syrgjendur
því að þeir munu huggaðir verða.
5Sælir eru hógværir
því að þeir munu jörðina erfa.
6Sælir eru þeir sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu
því að þeir munu saddir verða.
7Sælir eru miskunnsamir
því að þeim mun miskunnað verða.
8Sælir eru hjartahreinir
því að þeir munu Guð sjá.
9Sælir eru friðflytjendur
því að þeir munu Guðs börn kallaðir verða.
10Sælir eru þeir sem ofsóttir eru fyrir réttlætis sakir
því að þeirra er himnaríki.


 

11Sæl eruð þér þá er menn smána yður, ofsækja og ljúga á yður öllu illu mín vegna. 12Gleðjist og fagnið því að laun yðar eru mikil á himnum. Þannig ofsóttu þeir spámennina sem voru á undan yður.

 

Salt og ljós

13Þér eruð salt jarðar. Ef saltið dofnar, með hverju á að selta það? Það er þá til einskis nýtt, menn fleygja því og troða undir fótum.
14Þér eruð ljós heimsins. Borg, sem á fjalli stendur, fær ekki dulist. 15Ekki kveikja menn heldur ljós og setja undir mæliker heldur á ljósastiku og þá lýsir það öllum í húsinu. 16Þannig lýsi ljós yðar meðal mannanna að þeir sjái góð verk yðar og vegsami föður yðar sem er á himnum.

Nýtt lögmál

17Ætlið ekki að ég sé kominn til að afnema lögmálið eða spámennina. Ég kom ekki til að afnema heldur uppfylla. 18Sannlega segi ég yður: Þar til himinn og jörð líða undir lok mun ekki einn smástafur eða stafkrókur falla úr lögmálinu uns allt er komið fram. 19Hver sem því brýtur eitt af þessum minnstu boðum og kennir öðrum það mun kallast minnstur í himnaríki en sá sem heldur þau og kennir mun mikill kallast í himnaríki. 20Ég segi yður: Ef réttlæti yðar ber ekki af réttlæti fræðimanna og farísea komist þér aldrei í himnaríki.

Skjótur til sátta

21Þér hafið heyrt að sagt var við forfeðurna: Þú skalt ekki morð fremja. Sá sem morð fremur skal svara til saka fyrir dómi. 22En ég segi yður: Hver sem reiðist[1]

Sum handrit bæta við: að ástæðulausu.

 bróður sínum skal svara til saka fyrir dómi. Sá sem hrakyrðir bróður sinn skal svara til saka fyrir ráðinu og hver sem svívirðir hann hefur unnið til eldsvítis. 23Sértu því að færa fórn þína á altarið og minnist þess þar að bróðir þinn hefur eitthvað á móti þér 24þá skaltu skilja gjöf þína eftir fyrir framan altarið, fara fyrst og sættast við bróður þinn, koma síðan og færa fórn þína.
25Vertu skjótur til sátta við andstæðing þinn meðan þú ert enn á vegi með honum til þess að hann selji þig ekki dómaranum í hendur og dómarinn þjóninum og þér verði varpað í fangelsi. 26Sannlega segi ég þér: Eigi munt þú komast út þaðan fyrr en þú hefur borgað síðasta eyri.

Betra er þér

27Þér hafið heyrt að sagt var: Þú skalt ekki drýgja hór. 28En ég segi yður: Hver sem horfir á konu í girndarhug hefur þegar drýgt hór með henni í hjarta sínu. 29Ef hægra auga þitt tælir þig til falls þá ríf það úr og kasta frá þér. Betra er þér að einn lima þinna glatist en öllum líkama þínum verði kastað í helvíti. 30Ef hægri hönd þín tælir þig til falls þá sníð hana af og kasta frá þér. Betra er þér að einn lima þinna glatist en allur líkami þinn fari til helvítis.
31Þá var og sagt: Sá sem skilur við konu sína skal gefa henni skilnaðarbréf. 32En ég segi yður: Hver sem skilur við konu sína, nema fyrir hórsök, verður til þess að hún drýgir hór. Og sá sem gengur að eiga fráskilda konu drýgir hór.

Þegar þér talið

33Enn hafið þér heyrt að sagt var við forfeðurna: Þú skalt ekki vinna rangan eið en halda skaltu eiða þína við Drottin. 34En ég segi yður að þér eigið alls ekki að sverja, hvorki við himininn, því hann er hásæti Guðs, 35né við jörðina, því hún er skör fóta hans, né við Jerúsalem, því hún er borg hins mikla konungs. 36Og eigi skaltu sverja við höfuð þitt því að þú getur ekki gert eitt hár hvítt eða svart. 37En þegar þér talið sé já yðar já og nei sé nei. Það sem umfram er kemur frá hinum vonda.

Verið fullkomin

38Þér hafið heyrt að sagt var: Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. 39En ég segi yður: Rísið ekki gegn þeim sem gerir yður mein. Nei, slái einhver þig á hægri kinn þá bjóð honum einnig hina. 40Og vilji einhver þreyta lög við þig og hafa af þér kyrtil þinn gef honum eftir yfirhöfnina líka. 41Og neyði einhver þig með sér eina mílu þá far með honum tvær. 42Gef þeim sem biður þig og snú ekki baki við þeim sem vill fá lán hjá þér.
43Þér hafið heyrt að sagt var: Þú skalt elska náunga þinn og hata óvin þinn. 44En ég segi yður: Elskið óvini yðar og biðjið fyrir þeim sem ofsækja yður. 45Þannig sýnið þér að þér eruð börn föður yðar á himnum er lætur sól sína renna upp yfir vonda sem góða og rigna yfir réttláta sem rangláta. 46Þótt þér elskið þá sem yður elska, hver laun eigið þér fyrir það? Gera ekki tollheimtumenn hið sama? 47Og hvað er það þótt þér heilsið bræðrum yðar og systrum[2]

Orðrétt: bræðrum.

 einum? Það gera jafnvel heiðnir menn. 48Verið því fullkomin eins og faðir yðar himneskur er fullkominn. 

 

Guð blessi ykkur í dag og fylli ykkur af sínum anda!!

Fanney


Allt í góðu....

.. hjá okkur. Smá snjór og ágætur vetur. Höfum verið dugleg að ganga niður í bæ undanfarið. Fórum t.d. þrisvar sinnum í síðustu viku. Þetta er góður klukkutíma gangur fyrir okkur aðra leið. Nokkrir garðar á leiðinni og verslanir auðvitað sem hægt er að skoða á leiðinni... mis gaman finnst fólki. En mér, Daníel og Markúsi finnst það gaman og hinum ekki.. Þeir geta þá leikið sér í görðunum á meðan..

Við erum byrjuð á nýrri önn og það þíðir ný fög. Að þessu sinni er það Nýja Testamentið og pínu Gamla. Þetta er eins og áður mjög áhugavert. Maður þarf að ríghalda í trúnna til að konma ekki með minni trú út úr þessu. Það er svo mikið af kenningum og vísindalegu "rugli" sem þarf að vera með "útafþví" (eins og Davíð Pálmi segir) Þetta er háskóli og þá er þess krafist af menntamálaráðuneytinu. Það er algjört auka atriði finnst mér hvort allt í bréfunum hans Páls sé eins skrifað, með eins stíl, og svoleiðis. En það er eflaust gott að vita að mörgum er ekki sama og reyna allt sem þeir geta til að klekkja á gildi Biblíunnar með svoleiðis athugasemdum. Fyrir mér er Biblían Guðs orð. Heilagt meira að segja. Og ef okkur líkar ekki það sem stendur þar, sem trúað fólk, getum við ekki annað en beygt okkur undir það, einmitt afþví að það er Guð sem blés hana í þessa menn sem skrifuðu hana. Hvort það var gert svona eða svona vitum við ekki og það er bara alltí lagi. Finnst mér. Ég er samt ekki að gagnrýna þá sem finnst það mikilvægt. Það er bara ekki mikilvægt fyrir mig. Svona erum við misjöfn.

Jæja. Ég vona að þið séuð með frið í hjörtum ekkar í dag. Ef ekki: þá biðjið um hann. Það er einmitt það sem Guð biður okkur um að gera... "biðjið og yður mun veitast.." Og þessi friður sem Guð gefur er ofar okkar skilnings. Himneskur friður. Stundum næ ég að halda honum í smá stund og stundum lengur.

Heyri í ykkur seinna....

Fanney

 

 


Gleðilegt ár...

... já nú er langt síðan ég hef skrifað eitthvað hér.. Við vorum á kafi í skólanum alveg til 18. des en þá kom jólafrí eins og himnasending þar sem við vorum orðin frekar þreytt öll saman. Við vorum á gistiheimili sem er á Aastad Gård í Asker. ca 20 mín frá Osló. Þar var nánæst öll fjölskylda Fjölnis. Gulli kom frá Kristiansand með sína Trine og 2 börn og Stefán kom með Jónu og syni þeirra frá Íslandi. Viggi Palli og Sigrún áttu ekki langa leið þar sem þau búa í næsta húsi... Við áttum mjög góð jól saman. Borðuðum MIKIÐ góðann mat og bara chilluðum.

 Þetta er mynd af Aastad Gård:

Aastad Gård

 

 

 

 

 

 

 

Takk kærlega fyrir jólakortin þið öll sem senduð okkur... Það var yndislegt að lesa þau á aðfangardag! Besta jólagjöfin!

Annars er nú bara gott að frétta af okkur. Á þriðjudaginn byrjar næsta törn... Það verður örugglega mjög skemmtilegt. Við byrjum á Nýja Testamentinu. Gott að fara í Biblíuna aftur!

Ég vona að þið hafið það gott. Guð blessi ykkur! Kveð með þessum orðum.. Kólussubréfið 3:15

Látið frið Krists ríkja í hjörtum ykkar því að Guð kallaði ykkur til að lifa saman í friði sem limi í einum líkama. Verið þakklát.

Kærar kveðjur frá Fanney og co.


Höfundur

Fanney og Fjölnir í Kenýu
Fanney og Fjölnir í Kenýu
Störfum og lifum sem kristniboðar í Pokot, Kenýa

Nýjustu myndir

  • Valary að búa til hundamat
  • Við Susan og Davíð við kleinugerð
  • Ég líka.. ég líka
  • Pauline að leika sér að skjóta
  • Pauleine og Charles frá Marakwet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband