Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

Sameinuð á ný

InLove Nú er Markús kominn heim og það var rosalega gott að fá hann heim. Honum leið vel í Langedrag og upplifði mikið spennandi... úlfa, gaupur, hesta, getur, kanínur osfr. Það fyrsta sem hann bað um var að hafa kjöt í matinn... Hann var búinn að vera á grænmetisfæði alla dagana... Grin

Mamman bjó til taco pizzu sem var rosalega góð og svo var kúsekvöld með íslensku nammi.. ég var fjarri góðu gamni þar sem mér var boðið í stelpukvöld með 3 "konum" í raðhúsunum fyrir neðan okkur. Þar var líka pizza og himneskt búst. Rosalega skemmtilegt kvöld.

Nú er það koddinn... hlakka mjög til að drolla á morgun.... drolla og drolla fru Blom... keyra Salómon í afmæli á Furuset og taka til... já já..

Góða nótt og Guð blessi ykkur!!


Nóg að gera...

Orð dagsins úr Dýrmætara enn Gull er "Gef þú herjum sem biður þig." Lúk. 6:30 

Í dag er nóg að gera... Skóli fyrir okkur öll og svo er Markús minn að koma heim eftir 5 daga skólaferðalag... ég hef saknað hans mikið og vona að hann hafi haft það gott. Ég fer og sæki hann með T-bananum á eftir. Ætla niðrí bæ til að kaupa bækur fyrir næstu lotu, sækja Markús og kaupa það sem ég þarf til að gera pizzu. Verum að halda upp á að Markús kemur heim InLove 

Davíð Pálmi er eitthvað að tjá sig um vanlíðan, er doldið reiður og óþekkur, endilega biðjið fyrir honum!

Veðrið er yndislegt og pabbi á afmæli í dag... til hamingju pabbi minn!! Wizard Wizard

Guð blessi þig þú sem lest!

 


Dagurinn í dag...

Vaknaði kl 06:00 setti á kaffi og fór í sturtu. Ætlaði að fara að lesa í Biblíunni ,en þá voru bæði SSF og DPF vaknaðir þannig að allt fór af stað. Við borðuðum og Fjölli skutlaði þeim svo í skólann. Svo hófst okkar skóladagur kl 10 og var búinn um 14:30. Þá bakaði ég snúða og muffins, og bauð svo Ho-Hsing, Fredrik og Lars í mat. Spagettí og nýbökuð rúnstykki... rosalega gott. Daníel fór í fótbolta á Lindeberg og Davíð fór að sofa kl 18:30. Saló fór með bakkelsi til Kínó og Sakka. HHY og fam. fóru kl 19:30 og þá stuttu seinna fír Saló að sofa. Við Fjölli kíktum aðeins á 12-spora dæmið sem við ætlum að starta hér bráðlega og svo var bara að setjast í sófann og slaka á aðeins. Þá hringdi Daníel sem var alveg búinní fótunum eftir boltann og bað mig um að sækja sig á Carl Berner... erfitt að ganga upp brekkuna heim... Þá er bara að standa upp sækja hann og fara að lesa fyrir morgundaginn ..Smile

Góða nótt þið sem lesið og Guð blessi ykkur!!


Ummmm hvað Guð er góður...

Hugsið ykkur að fá að vakna dag eftir dag með allri fjölskyldunni, allir frískir, sumir geðvondir að vísu, en samt ekki í dag. Markús er fjarri góðu gamni, en vonandi er hann hafn glaður og hann á að sér að vera.

Guð blessi ykkur í dag... hjarta mitt springur af gleði og kærleika.... akkúrat núna.... og svo þarf ég efalaust að biðja mörgum sinnum í dag út af geðvonsku eða eitthvað en það er allt í lagi. Guð vill vera með okkur á ÖLLUM sviðum lífs okkar... gleði, sorg, áhyggjum, líka útaf peningum, og já bara öllu!!

 Orð dagsins úr Dýrmætara enn Gull er "Berstu trúarinnar góðu baráttu" 1. Tím. 6:12

 


Nýjar myndir

Ég er búin að sitja sveitt og setja inn myndir.... bendi sérstaklega á skrímslið mitt litla!!

Heil og sæl..

“Áður en grunnur heimsins var lagður útvaldi hann oss í Kristi að hann hefði oss fyrir augum sér heilög og lýtalaus í kærleika. Fyrir fram ákvað hann að gera oss að börnum sínum í Jesú Kristi. Sá var náðarvilji hans. Hann vildi að vér yrðum til vegsemdar dýrð hans og náð sem hann hefur gefið oss í sínum elskaða syni. Í honum, fyrir hans blóð, eigum vér endurlausnina og fyrirgefningu afbrota vorra. Og hann hefur birt oss leyndardóm vilja síns, þann ásetning um Krist sem hann í náð sinni ætlaði sér að framkvæma í fyllingu tímanna: Að safna öllu sem til er á himni og jörðu undir eitt höfuð í Kristi. Í honum höfum vér þá líka öðlast arfleifðina eins og oss var fyrirhugað samkvæmt fyrirætlun hans er framkvæmir allt eftir ályktun vilja síns”

Efesusbréfið

1. 4-7 og 9-11

Þá er netið aðeins að koma til baka og þá er víst eins gott að skrifa eitthvað!

Það er svo langt síðan síðast að ég veit ekki hvar ég á að byrja. En það mikilvæga fyrst kannski. Okkur líður mikið betur, vorum ekki alveg að virka vel áður en Ásta og Keith komu, en það að vera með þeim, tala og biðja saman gerði gæfumuninn. Þá viku sem þau voru hjá okkur var haustfrí hjá strákunum, verkefna vika hjá okkur og Davíð Pálmi veikur, ekkert sérstaklega góð blanda en við náðum að klára verkefnið 3000 orð í fjölmenningarlegu samhengi eitthvað.... við erum rosalega spennt að fá einkunn á föstudaginn. Við náðum prófinu sem við tókum í Gamla og Nýja testamentinu.

 

Núna erum við í 3 fögum. Siðferði, trúarfræði og kirkjudeildir. Þetta er rosalega áhugavert og skemmtilegt og við komum til með að taka 5 daga heimapróf 1. vikuna í nóvember. Einskonar verkefni sem verður úr einhverju af þessum fögum... rosalega spennandi. Við erum með 2 ný í bekknum. Eina frá Eritriu og einn frá Kongó. Það er rosalega gaman að kynnast þeim og heyra þeirra sögu sem er mögnuð. Hann heitir Crispin Kashale og þið getið googlað honum og lesið um hann ef þið viljið. Mögnuð saga...

  

Strákarnir eru hressir, Davíð Pálmi hefur verið eitthvað að vesénast í leikskólanum, bitið og verið óþekkur en hann er allur að koma til. Salómon er á fullu að læra um steinaldurinn, hann heitir arnarspor þessa dagana og er eiginlega að verða lítill norsari. Það vill hann alls ekki viðurkenna... hann leikur sér í tindátum alla daga og þá eru norðmenn og íslendingar í stríði og íslendingarnir vinna ALLTAF... Markús er í skólaferðalagi. Hann fór á mánudags morgun og kemur heim á föstudaginn. Vonandi hefur þetta verið skemmtileg ferð. Það eru alls konar dýr þarna í Langedrag. Úlfar, Gaupur, hestar, kýr og fleiri tegundir semég man ekki... Daníel er orðinn góður í hnénu og farinn að æfa aftur smá. Hann er mest í því að finna út hvar besta Kebabið fæst og er alveg að verða sérfræðingur í þeim málum.

 

Við ætlum að bjóða upp á 12-sporin hér á Fjellhaug. Vorum beðin um það og þar sem þetta kerfi er ekki í boði hér í Norge, þá er alveg sjálfsagt að keyra þetta hér. Ætlum að reyna að fara í gegnum allt á 16 vikum sem er doldið erfitt, en þá er allavega hægt að halda þetta svo aftur næsta haust ef áhugi er fyrir hendi.

 

Hvað er svo að frétta af ykkur ? Hvernig er ástandið á Íslandi. Er matur í verslunum ?

 

Ástarkveðjur frá Fanney og Co.


Netið er niðri...

Þar sem netið er svo að segja niðri verður smá pása í fréttaskrifum um okkar hversdagsleik..... Ég kem sterk tilbaka um leið og netið verður samvinnufært!

 

Bless í bili!


Hvernig líður ykkur þarna hinumegin ??

.....fréttirnar sem maður les á netinu eru nú ekki beint upplífgandi..... Glitnir farinn á hausinn.... Ein íslensk hér sem sagði mér að hún gæti ekki tekið út peninginn sinn.... vá þetta er nú doldið heavy... Ég hef áhyggjur af ástandinu verð ég nú bara að segja. Jæja... það þíðir víst ekkert.. geri hvorki til né frá með því að hafa áhyggjur.

Við erum með heimsókn.. Ásta og Keith komu á mánudaginn og mikið rosalega er nú notalegt að hafa þau! Kaffi og spjall og kaffi og spjall.. OG ÍSLENSKT NAMMI!!! Það jafnast ekkert á við það... nema kannski norskt nammi... nei djók..FootinMouth Davíð Pálmi er að vísu búinn að vera lasinn, með hita og eitthvað svo illt í munninum.. fer með hann til læknis í dag.

Prófið gekk ágætlega á mánudaginn, ég var að vísu með einhverja lokun. Fannst ég ekkert geta skrifað. Verkefnin voru ágæt og ég kunni þetta ágætlega en átti erfitt með að koma því frá mér.. Sjáum til hvernig þetta gengur. Fjölla gekk vel, norskan setti einhver takmörk fyrir þessu í kringum kjarnann. Hann er ótrúlega flinkur þessi karl minnHalo ég sé það alltaf betur hvað Guð hefur gefið mér góðan mann....

Hvernig er það Egilsstaða gellur..... engar myndir frá brúðkaupinu þeirra Stefáns og Önnu Dóru ?

 Jæja... ég þarf að fara að klára verkefnið. Nenni ekki að hafa þetta hangandi yfir mér lengur. Bless bless...

Orð dagsins úr Dýrmætara enn Gull er "Hegðið ykkur eins og samboðið er fagnaðerindinu um Krist" Fil. 1:27

 


Höfundur

Fanney og Fjölnir í Kenýu
Fanney og Fjölnir í Kenýu
Störfum og lifum sem kristniboðar í Pokot, Kenýa

Nýjustu myndir

  • Valary að búa til hundamat
  • Við Susan og Davíð við kleinugerð
  • Ég líka.. ég líka
  • Pauline að leika sér að skjóta
  • Pauleine og Charles frá Marakwet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband