Fimmtudagur, 20. nóvember 2008
Yndislegur dagur....
Vá.. dagurinn í gær var alveg frábær. Húllumhæið byrjaði kl 05:20 þegar Markús, sem hafði bakað köku handa mömmu sinni í leyni daginn áður, fór að undirbúa afmælissöng og svoleiðis sem mamman átti að fá í rúmið. Ég fór fram og benti honum á að það væri nótt.... hann greyjið hafði þá gleymt að stilla vetrartímann í símanum sínum og fór aftur inn að sofa. Ætlaði sem sagt ekkert að byrja fyrr en 06:30... hjúkket..
Svo komu þeir bræður, Markús og Salómon syngjandi með kerti og bros á vör um sex leitið. Yndislegt! Svo var borðað hafragraut og súkkulaðikaka "ala" Markús. Strákarnir sendir í skólann og við hjónin settumst í leshornið okkar og reyndum að lesa. Það var mikið spjall og svo fórum við á Mexicanskann stað og fengum okkur léttann hádegisverð. Æði! Fórum svo heim að undirbúa smá veislu... Salómon var búinn að panta búðinga og hlaup lest skreytta með hlaupmönnum... mikil spenna í marga daga.... Fjölli demdi sér í það og ég bjó til ávaxta rjóma rétt.. eplaköku, heitt kakó og íste.. Svo fóru gestir að koma, bæði boðnir og óvæntir gestir. Það var rosalega gaman. Það er svo gaman að eiga afmæli!! Ég er ennþá eins og krakki með þetta..
Svo var talað, borðað, hlegið og allt sem fólk gerir þegar það er í afmæli... Teindó kom svo og passaði gormana... Við Fjölli fórum á Friday's og svo í Bíó... á alveg rosalega mynd sem heitir "De uskyldige".. norsk mynd sem ég held að sé bara besta mynd sem ég hef séð lengi. Hún hafði djúp áhrif á mig og ég held að ég mæli barasta með henni sterklega. Hún er um strák sem drap lítinn strák. Hann fær vinnu sem organisti í krikju þegar hann er búinn að sitja af sér dóminn. Myndin er um hans líf rétt eftir að hann kemur út.. erfitt að segja frá, án þess að gefa upp myndina, en hún er gerð af djúpu innsæi og persónuleikarnir eru mjög raunverulegir. Vel leikin og frábær söguþráður... Besta einkun sem sagt!
Takk fyrir kveðjur á síðuna mína og á facebook... sms og símhringingar. Rosalega eruð þið góð við mig!! TAKK!
Orð dagsins úr Dýrmætara enn Gull er "Svo segir Drottinn allsherjar: Snúið yður til mín, þá mun ég snúa mér til yðar." Sak.: 1:3
Hér eru nokkrar myndir frá afmælinu.
Bestu kveðjur og Guð blessi ykkur!
Tenglar
Mínir tenglar
- Fjellhaug skoler Heimasíða skólans sem við erum í
- Veðrið í Osló...
Bloggvinir
- Anna systir Anna Björg og fjölskylda í Mosó...
- Álfheiðurin mín á Eyjó Hvað get ég sagt ??
- Guðrún mákona Guðrún og Óskar bróðir í Búðardal
- Súsý frænka
- Dandý á Egilsstöðum Mamma Söndru mm...
Af mbl.is
Erlent
- Ríkisstjórn Ísraels samþykkir vopnahlé
- Breytingar bera árangur: París verður hjólaborg
- Byggja geymslu fyrir kjarnorkueldsneyti
- Innsetningarathöfnin færð inn í þinghúsið
- Verð að fá tíma til að fara yfir stöðuna
- Sonja í fullu fjöri með gangráðinn
- Hæstiréttur staðfestir TikTok-bann
- Öryggisráð Ísraels samþykkir vopnahlé
- Fasísk öfl bak við innbrot í sendiráð
- Kennari stunginn í Svíþjóð
Athugasemdir
Frábærir strákar sem þú átt, (allir sko ) frábærir vinir og greinilega frábær dagur. Frábært þar sem um svona frábæra konu er að ræða
Miss jú honí!
Álfheiður (IP-tala skráð) 20.11.2008 kl. 16:41
Já það er satt... En ef þú hefðir nú verið hér... þáááá hefði þetta verið fullkomið
Fanney og Fjölnir í Kenýu, 20.11.2008 kl. 18:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.