Mánudagur, 8. september 2008
Varð bara að hafa þetta með......
Þetta er lestur dagsins í Máttarorði...
"Hvern þann sem kannast við mig fyrir mönnum mun og ég við kannast fyrir föður mínum á himnum. En þeim sem afneitar mér fyrir mönnum mun ég og afneita fyrir föður mínum á himnum" (Mattíasar Guðspjall 10. kafli 32. - 33. vers.)
Jesú nafn skal hærra, hærra
hljóma yfir vorri jörð.
Jesú nafn og ekkert annað
eflir Drottins litlu hjörð,
hrekur burtu hatrið blinda,
hrelldum sálum veitir frið,
gefur þrek og þrótt að stríða
þeim, sem elska réttlætið.
David Welander - Sigurbjörn Sveinsson
Hafið það gott í dag!!!
Tenglar
Mínir tenglar
- Fjellhaug skoler Heimasíða skólans sem við erum í
- Veðrið í Osló...
Bloggvinir
- Anna systir Anna Björg og fjölskylda í Mosó...
- Álfheiðurin mín á Eyjó Hvað get ég sagt ??
- Guðrún mákona Guðrún og Óskar bróðir í Búðardal
- Súsý frænka
- Dandý á Egilsstöðum Mamma Söndru mm...
Af mbl.is
Viðskipti
- Fréttaskýring: Hvaða vitleysu ertu að lesa?
- Greining á eignum hlutabréfasjóða
- Það er alltaf óvissa
- Mikið virði í Íslenskum verðbréfum
- Afkoma Haga styrktist á fjórðungnum
- Hagnaður Ölgerðarinnar dregst saman um 22%
- Erum rétt að byrja
- Hrönn stýrir Kríu
- Skuggagervigreind eykur líkur á árásum
- Ísleifur nýr forstöðumaður hjá Ofar
Athugasemdir
Hæ hæ kæra fjölskylda.
Ég var að finna þessa síðu núna og mikið er gaman að geta fylgst með fjölskyldunni þarna úti. Ég sé að öllum gengur vel, þrátt fyrir nokkur íþróttameiðsli, en ég hef lent í þessu sama og Daníel, þ.e.a.s að hnéskélin færðist úr stað... ekki gott, bata kveðjur til hans. Ég efast ekki um að það hafa verið mikil fagnaðarlæti þegar amma og afi birtust en að sama skapi er þeirra sárt saknað hérna hjá okkur. Gangi ykkur vel í leik og starfi. Ég ætla sko að halda áfram að fylgjast með ykkur.
Kveðja, Sigrún Hauksdóttir
P.s. ég er hætt að blogga en læt vita ef ég opna síðuna aftur. Það er hægt að fylgjast með í svipmyndum á síðunni hennar Emilíu.
Sigrún Jóna Hauksdóttir (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 10:22
sakna þín dúllan mín...
Alda (IP-tala skráð) 12.9.2008 kl. 00:40
"Hærra minn Guð til þín, hærra til þín" hefur líka verið að skoppa inni í höfðinu á mér í dag - oft finnst mér gömlu sálmarnir innihaldsbetri en lofgjörðin í dag (vildi samt að ég kynni fleiri lög).
Gangi ykkur sem allra best með kærri kveðju af Bakkanum
Ragnar Kristján Gestsson, 12.9.2008 kl. 21:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.