Leita í fréttum mbl.is

Vá... það er vika síðan síðast....

.....og aftur kominn lesedag... Ég sit hér sveitt eftir að hafa farið með Daníel í röntgen myndatöku og svo í skólann og svo að skutla Davíð í leikskólann... það er brjálað að gera gott fólk.

Svo núna sit ég með kaffi latte og ný búin að borða ristað brauð með taffelost.. nammi namm.. og er að fara yfir glósurnar og allt sem ég þarf að lesa fyrir mánudaginn. Þá er próf í NTog GT...

Jæja dúllurnar mínar. Takk fyrir commentin... ég skrifa ekkert tilbaka, en ég er rosalega þakklát ykkur sem skilja eftir comment. Ekki hætta þó ég svari ekki. Ég verð að setja mörk fyrir tölvutíma þar sem ég hef doldið mikið að gera bæði í skólanum og heimilið almennt. En það heldur mér bloggandi að fá comment!!!

Set hérna inn orð dagsins sem ég fékk sent í tölvupósti í dag... Þessi orð hafa hjálpað mér mikið. Það er svo gott að vita að Drottinn hafi heyrt grátbeiðni okkar....

Bless í bili..Wink

Sálmarnir 28:6-9

Lofaður sé Drottinn því að hann hefur heyrt grátbeiðni mína. Drottinn er styrkur minn og skjöldur, honum treystir hjarta mitt. Ég hlaut hjálp, því fagnar hjarta mitt, og með ljóðum mínum lofa ég hann. Drottinn er styrkur lýð sínum, vígi til varnar sínum smurða. Hjálpa lýð þínum og blessa eign þína. Ver hirðir þeirra og ber þá að eilífu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ sæta gaman að allt gangi vel hjá ykkur alltaf gaman að skoða bloggið þitt farðu vel með þig og þína og kyssa svo alla KALLANA þína frá mér kveðja Anna Ósk

Anna Ósk (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 17:53

2 identicon

Æi já, ég þekki þetta með lesturinn og tímaleysið.... Gott að fá blogg samt, ég hugsa mikið til ykkar og vona að allt gangi vel

Hafið það nú gott, verið góð við hvert annað og skilaðu kveðju frá okkur

-Guðrún

Guðrún (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 20:11

3 identicon

Fanney mín - ég kíki inn hjá þér á hverjum degi. . Bestu kveðjur

Kata

Katrín (IP-tala skráð) 25.9.2008 kl. 17:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Fanney og Fjölnir í Kenýu
Fanney og Fjölnir í Kenýu
Störfum og lifum sem kristniboðar í Pokot, Kenýa

Nýjustu myndir

  • Valary að búa til hundamat
  • Við Susan og Davíð við kleinugerð
  • Ég líka.. ég líka
  • Pauline að leika sér að skjóta
  • Pauleine og Charles frá Marakwet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband