Leita í fréttum mbl.is

Hvernig líður ykkur þarna hinumegin ??

.....fréttirnar sem maður les á netinu eru nú ekki beint upplífgandi..... Glitnir farinn á hausinn.... Ein íslensk hér sem sagði mér að hún gæti ekki tekið út peninginn sinn.... vá þetta er nú doldið heavy... Ég hef áhyggjur af ástandinu verð ég nú bara að segja. Jæja... það þíðir víst ekkert.. geri hvorki til né frá með því að hafa áhyggjur.

Við erum með heimsókn.. Ásta og Keith komu á mánudaginn og mikið rosalega er nú notalegt að hafa þau! Kaffi og spjall og kaffi og spjall.. OG ÍSLENSKT NAMMI!!! Það jafnast ekkert á við það... nema kannski norskt nammi... nei djók..FootinMouth Davíð Pálmi er að vísu búinn að vera lasinn, með hita og eitthvað svo illt í munninum.. fer með hann til læknis í dag.

Prófið gekk ágætlega á mánudaginn, ég var að vísu með einhverja lokun. Fannst ég ekkert geta skrifað. Verkefnin voru ágæt og ég kunni þetta ágætlega en átti erfitt með að koma því frá mér.. Sjáum til hvernig þetta gengur. Fjölla gekk vel, norskan setti einhver takmörk fyrir þessu í kringum kjarnann. Hann er ótrúlega flinkur þessi karl minnHalo ég sé það alltaf betur hvað Guð hefur gefið mér góðan mann....

Hvernig er það Egilsstaða gellur..... engar myndir frá brúðkaupinu þeirra Stefáns og Önnu Dóru ?

 Jæja... ég þarf að fara að klára verkefnið. Nenni ekki að hafa þetta hangandi yfir mér lengur. Bless bless...

Orð dagsins úr Dýrmætara enn Gull er "Hegðið ykkur eins og samboðið er fagnaðerindinu um Krist" Fil. 1:27

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

æææ það er enginn eins og þú dúllan mín.. 2.október og þú ert strax komin með októberalbúm á síðuna! þá finnst mér ekkert skrítið að ég sé skömmuð yfir að vera ekki með nýrri myndir á Davíðs síðu.. nýjustu eru síðan um jólin og þar til í sumar.. *roðn*

ég tek þig mér til fyrirmyndar.. eins og svo oft áður.. og laga þetta fljótlega

Hey...engar myndir af brúðkaupinu.. en ég talaði við Önnu Dóru og hún sagði að þetta hefði verið algjör draumadagur í þeirra huga, allt frábært og allir hraustir í faðmi fjölskyldunnar og þau alveg í skýjunum og ægilega ástfangin

eníhú.. skrifa þér betur í meili fljótlega elskan mín.

 kossar og knús og kremj, þín Alda.

Aldapalda (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 11:40

2 identicon

Hææ.. var loksins að uppgötva þessa síðu, fer að verða dugleg að skoða núna bið annars bara rosalega vel að heilsa öllum, ykkur, strákunum og Keith og Ástu.. fer svo að setjast við skriftir bráðum og skrifa ykkur almennilegan póst ..kv Ása

Ása Karen (IP-tala skráð) 2.10.2008 kl. 17:34

3 Smámynd: Fanney og Fjölnir í Kenýu

Hæ mús... gaman að heyra í þér! Ásta og Keith biðja að heilsa tilbaka. Hvar ertu nú stödd í heiminum ?? Við biðjum að heilsa pabba gamla, Unnsteini og Ólafíu.. til hamingju með afmælið hennar!

Knús og kossar frá Fanney og strákunum öllum

Fanney og Fjölnir í Kenýu, 2.10.2008 kl. 17:40

4 identicon

Hæ hæ elskurnar mínar. Ég er ekki smá ánægð að rekast á síðuna ykkar, gaman að fá fréttir af ykkur. Hér er allt gott að frétta. Fengum snjó í gær en hann stoppaði stutt. Skrifa meira seinna. kveðja Kristrún Eskjó.

Kristrún Antonsd (IP-tala skráð) 4.10.2008 kl. 23:09

5 Smámynd: Fanney og Fjölnir í Kenýu

Já frábært að geta verið í svona sambandi yfir hafið... Bið að heilsa öllum þínum... Fjölli biður kærlega að heilsa!

Fanney og Fjölnir í Kenýu, 5.10.2008 kl. 18:31

6 identicon

Jæja góða, hefurðu ekki einhverjar nýjar fréttir? Ég vil heyra meira

Álfheiður (IP-tala skráð) 6.10.2008 kl. 10:52

7 Smámynd: Fanney og Fjölnir í Kenýu

jú Álfheiður mín... ég skal reyna að standa mig betur!!

Fanney og Fjölnir í Kenýu, 6.10.2008 kl. 19:40

8 identicon

Þú stendur þig prýðilega Fanney mín. Mér finnst bara svo gaman að heyra hvað þið eruð að bardúsa þarna í landinu fjarlæga.

Knús á liðið!

Álfheiður (IP-tala skráð) 7.10.2008 kl. 20:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Fanney og Fjölnir í Kenýu
Fanney og Fjölnir í Kenýu
Störfum og lifum sem kristniboðar í Pokot, Kenýa

Nýjustu myndir

  • Valary að búa til hundamat
  • Við Susan og Davíð við kleinugerð
  • Ég líka.. ég líka
  • Pauline að leika sér að skjóta
  • Pauleine og Charles frá Marakwet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband