Leita í fréttum mbl.is

Terje Forsberg...

Á miðvikudaginn var hér (á Fjellhaug) maður sem heitir Terje Forsberg. Hann deildi vitnisburði sínum, sem var eiginlega alveg ótrúlegur. Hann ólst upp við ömurlegar aðstæður, barsmíðar, kulda, sult og hörku. Hann frelsaðist á sérstakan hátt þegar hann var 20 ára. Og þegar hann var 50 ára lærði hann að skrifa og 8 árum síðar skrifaði hann þessa bók sem heitir.. "Aldrei of seint að verða hamingjusamt barn" Það gerist eitthvað þegar maður hlustar á svona frásögn. Að fólk skuli lifa svona af.... að sona lagað viðgangist, og kannski það versta, að enginn skuli hjálpa svona krökkum, vitandi hvernig ástandið væri. Þetta þekkjum við nú á Íslandi líka, ekki langt síðan Ásdís stóð fram og sagði frá sinni bernsku. Afhverju er svona erfitt að grípa inn þegar maður veit í hjarta sínu að einhver er beittur órétti? Ég veit það ekki, en ég veit að það er hægara sagt enn gert og það er ekki gott. Þið sem eruð sleip í norskunni getið googlað nafninu hans og orðið upplýstari um þennan mann ef þið viljið.

Annars var ég í klúbb í gær. Hef verið í klúbb hér síðan 1990 eða 1991, dett inn þegar ég er í Osló... 8 eldhressar stelpur. Ég hef sjaldan hlegið svona mikið.... það er svo gott að hlæjaLoL

Í kvöld fara prinsarnir til ömmu og afa í sveitina... það verður gaman, allavega hlakkar þeim mikið til..(þið íslenskufræðingar verðið að afsaka ef ég beygi ekki rétt og svona... ég er mjög þakklát henni Birgittu fyrir að hafa samið lagið Ég hlakka svo til... því ég var alltaf í vandræðum, er með þágufallssýki, er mér tjáð, af mörgum.... hmmm Álfheiður..)

Við Fjölli verðum að lesa og lesa og lesa, lokapróf á mánudaginn. Og vitiði hvað?????

Ásta og Keith eru að koma í heimsókn á mánudaginn!!!

Nú get ég sungið lagið hennar Birgittu svo hljómi ....Happy

Ég kveð að sinni... Elska að tala við ykkur svona. Mér finnst ég vera í mjög góðum samskiptum við alla á íslandi þar sem ég næ að tjá mig svona...

Orð dagsins í Dýrmætara en Gull er:"Auðsýnið hver öðrum kærleika og miskunnsemi" Sak. 7:9


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ooo

Alda (IP-tala skráð) 26.9.2008 kl. 09:15

2 identicon

hvaða hvaða.. pósturinn bara fór frá mér.. það sem ég vildi sagt hafa er..

 oooooo hvað ég vildi að ég gæti laumað mér oní ferðatöskuna hjá Ástu og Keith!!! það verður örugglega æði að fá þau í heimsókn!

 elskjú og saknjú,

þín Alda..

Alda (IP-tala skráð) 26.9.2008 kl. 09:17

3 identicon

... hmmmm Fanney ... ég held ég verði að fara að koma og taka þig í smá þjálfun

Væri allavega meira en til í að koma til þín væna mín. Kannski geri ég það einn góðan veðurdag ... hver veit ...

Álfheiður (IP-tala skráð) 26.9.2008 kl. 18:02

4 Smámynd: Fanney og Fjölnir í Kenýu

Það er bra að pakka og koma... Keith er kani og þeir eiga stórar töskur oftast.... og Álfheiður... any time.. ég þarfnast bæði líkamlegrar og íslensku þjálfun...

Fanney og Fjölnir í Kenýu, 26.9.2008 kl. 18:48

5 identicon

Hæ hæ

Vonandi hafið þið það sem allra best þarna úti. Ég bið rosalega vel að heilsa Markúsi, gefðu honum eitt knús frá mér:)

Kær kveðja,

Rannveig

Rannveig og Frosti (IP-tala skráð) 27.9.2008 kl. 15:26

6 identicon

Hæ hæ! Ég fékk áðan innum lúguna í vinnunni Kristniboðsfréttir. Þar sé ég eina og hálfa síðu tileinkaða ykkur. Mjög flottar myndir af ykkur öllum og úrdráttur úr blogginu. Gaman að sjá hvað gengur vel. Við biðjum að heilsa öllum og ég væri mjög glöð ef þið vilduð skila kossi til Sigrúnar frá mér.... það er voða skrýtið að hafa hana ekki innan seilingar :)

Kveðja úr haustinu á Íslandi

Sigrún Jóna Hauksdóttir (IP-tala skráð) 30.9.2008 kl. 15:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Fanney og Fjölnir í Kenýu
Fanney og Fjölnir í Kenýu
Störfum og lifum sem kristniboðar í Pokot, Kenýa

Nýjustu myndir

  • Valary að búa til hundamat
  • Við Susan og Davíð við kleinugerð
  • Ég líka.. ég líka
  • Pauline að leika sér að skjóta
  • Pauleine og Charles frá Marakwet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband