Leita í fréttum mbl.is

Gleðileg jól og takk fyrir árið!

Í ár sendi ég ekki jólakort, en sendi kveðju til ykkar allra í útvarpið og í Dagskránna á Egilsstöðum. Vonandi fenguð þið kveðjuna. Við verðum á Aastad Gård meå teindó og bræðrum Fjölnis um jólin og verðum í góðu yfirlæti!

Birti hér að gamni aðventu ljóð sem mér þykir mjög vænt um. Vona að höfundi sé sama...

 

Aðventuljóð

 

Í myrkrinu aðventuljósin loga

sem lýsandi bæn um grið.

Þessi veröld er full af skammdegisskuggum

það skortir á gleði og frið.

Það er margt sem vakir í vitund okkar

sem við höfum þráð og misst.

Þá er sálinni styrkur og hjartanu huggun

að hugsa um Jesú Krist.

 

Við lifum á uppgangs- og umbrotatíð

þar sem allt á að gerast strax.

Og andlegir sjóðir eyðast og glatast

í erli hins rúmhelga dags.

En samt er ein minning sem brennur svo björt

eins og brosandi morgunsól

um hann sem var sendur frá góðum Guði

og gaf okkur þessi jól.

 

Og jólin nálgast í hverju húsi

og hjarta hvers trúaðs manns.

Það er eins og við fáum andartakshvíld

á afmælisdaginn hans.

En eitt er það þó er í sál minni svíður

sárt eins og þyrnikrans

að mennirnir halda markaðshátíð

í minningu Frelsarans.

 

Hann boðaði hamingju, frið og frelsi

og fögnuð í hverri sál.

Hann kenndi um guðdóminn, kraftinn og ljósið

og kærleikans tungumál.

Og samt eru jólin hjá sumum haldin

í svartnættismyrkri og kvöl,

í skugga eymdar og ofbeldisverka

við örvænting, skort og böl.

 

Við lifum í dimmum og hörðum heimi

með hungur, fátækt og neyð

þar sem einn er að farast úr ofáti og drykkju

en annar sveltur um leið

þar sem einn er þjakaður andlegu böli

en annar ber líkamleg sár.

Og samt hefur lausnin frá þjáning og þraut

verið þekkt í tvö þúsund ár.

 

Og þrátt fyrir mannkynsins mistök og syndir

og myrkvuðu tímabil

og þrátt fyrir allt sen hann þurfti að líða

að þjást hér og finna til

hann bíður samt ennþá með opinn faðm

þar sem alltaf er skjól og hlíf

og biður um meiri mátt til að gefa

mönnunum eilíft líf.

 

Í myrkrinu aðventuljósin loga

sem lýsandi himnesk rós

Ógnþrungnir skammdegisskuggar víkja

við skínandi kertaljós.

Á jörðinni fölskvast hin andlegu efni

og oft er hér þungbær vist.

Þá er sálinni styrkur og hjartanu huggun

að hugsa um Jesú Krist.

        Ragnar Ingi Aðalsteinsson.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir kveðjurnar, heyrði og las

Hafið það gott um jólin og við biðjum að heilsa öllum.

Álfheiður (IP-tala skráð) 23.12.2008 kl. 22:52

2 identicon

ég vill bara óska ykkur gleðilegra jóla það er ekkert jólakort í ár vissi ekki adressuna ykkar vona að þið hafið það gott um jólinn kyss og knús frá okkur :)

Anna Ósk og annað heimilisfólk (IP-tala skráð) 24.12.2008 kl. 10:46

3 identicon

Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þúsund þakkir fyrir alla kaffibollana og spjöllin á árinu sem er alveg að líða. Ég vona að þið hafið það sem allra best og ykkar var sárt saknað í Bjálfatröðinni þetta árið. Farið vel með ykkur og ég bið innilega að heilsa strákunum

Hafrún Brynja Einarsdóttir (IP-tala skráð) 31.12.2008 kl. 11:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Fanney og Fjölnir í Kenýu
Fanney og Fjölnir í Kenýu
Störfum og lifum sem kristniboðar í Pokot, Kenýa

Nýjustu myndir

  • Valary að búa til hundamat
  • Við Susan og Davíð við kleinugerð
  • Ég líka.. ég líka
  • Pauline að leika sér að skjóta
  • Pauleine og Charles frá Marakwet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband