Leita í fréttum mbl.is

Þrumur og eldingar...

Vááá þetta kallar maður RIGNINGU.... það eru þrumur og eldingar og engin smá rigning... Það er merkilegt hvað þetta er heillandi og hræðandi í senn.. um daginn voru skráðar yfir 20.000 eldingar á einum sólarhring. Við vorum akkúrat á leiðinni út í gönguferð þegar þetta skall á og þá var hætt við gönguferð og Fjölnir fór með guttana í íþróttasalinn í staðinn..

...ástæðan fyrir því að ég sit hér og blogga í staðinn er sú að ég skar mig í puttann og fékk óó Pouty Þetta var rosalega klaufalegt, en ég var svo óþolinmóð og nennti ekki að bíða í 1 mín. eftir því að Fjölli mundi opna skrúfukassann sem við vorum að kaupa.. ákvað að geta þetta bara sjálf, þrátt fyrir beiðni hans um að gera það ekki.. Ég tók hnífinn hans Salómons og skar frekar djúpt í vísifingur, alveg inn að beini held ég... Blush

En þegar ég lá hér í sófanum og hugsaðu hve gálaus ég hafði verið, datt mér í hug að það væru nú einn til tveir kostir líka... ég get ekki vaskað upp.. Whistling.. ég get ekki skúrað.. Wink 

En svo til að gleðja ykkur aðeins vil ég deila þessum yndislega karakter með ykkur .. til þín frá mér:

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æi, greyið mitt, leiðinlegt fyrir þig að geta ekki skúrað og vaskað upp. En það verður bara að hafa það

Álfheiður (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 18:21

2 identicon

bara gaman að geta lesið um ykkur svona og njósnað í leiðinni love Anna Ósk

Anna Ósk (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 19:06

3 identicon

Yndislegur karl í flösku!!

Guðrún (IP-tala skráð) 11.8.2008 kl. 21:52

4 identicon

hæ sæta það er fæddur strákur Guðnasson klukkan 10 13 í morgun 14 merkur og 50 cm allt gekk mjög vel hendi inn myndum af honum þegar ég fæ að sjá hann

Anna Ósk (IP-tala skráð) 12.8.2008 kl. 11:37

5 identicon

Gott að vera komin á slóð ykkar aftur.  Vona að allt sé á góðri leið með að gróa, en ég myndi forðast skúringar og slíkt lengi, LENGI.....svona bara til að vera viss!

En það er gaman að sjá að ykkur líður greinilega vel.  Það er frábært.  Við hjónakornin fórum aftur að vinna á mánudaginn eftir ljómandi gott sumarfrí. 

Ég er nú svo hallærisleg að ég á ekki blogg eða heimasíðu....en ég fylgist með þér og þínum.

Kær kveðja, Jónína.

Ójá, svo er hann Tóti litli fertugur í dag.  Hann er að heiman!

Jónína (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 20:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Fanney og Fjölnir í Kenýu
Fanney og Fjölnir í Kenýu
Störfum og lifum sem kristniboðar í Pokot, Kenýa

Nýjustu myndir

  • Valary að búa til hundamat
  • Við Susan og Davíð við kleinugerð
  • Ég líka.. ég líka
  • Pauline að leika sér að skjóta
  • Pauleine og Charles frá Marakwet

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband